Skólinn ađ byrja ..
Þá er skólinn byrjaður aftur og mér hlakkar pínu til þar sem ég er í mikið léttari fögum heldur en í fyrra. Er líka byrjuð að vinna í Hamraborg aftur eftir mánaðar frí vegna prófanna og svo fór ég líka til Reyðarfjarðar um áramótin sem var ekkert mjög spes. Sat eiginlega inni allan daginn og horfði á vídjó með Rannveigu eða var útá Eskifirði í heimsókn hjá ömmu og afa sem voru að fá sér óótrúlega sætan hvolp :)
Um jólin vorum við systkinin hjá pabba og það var mjög gaman, voru 12 að borða og þar að leiðandi heeelling af pökkum til að opna en voru samt enga stund af því þar sem litlu krakkarnir voru svo spenntir og aktivir. Ég fékk mjög flottar jólagjafir og bara takk allir :)
En ég kom heim aftur að austan 2 janúar og svo byrjaði skólinn 4 janúar, var að vinna alla helgina eftir að ég kom heim og á mánudaginn og fór svo í neglur í gær og er búin að gera voða lítið í dag .. er bara að bíða eftir Baldri núna, hann er að koma heim úr úthaldi :D
Vill líka óska Júlíu litlu sistir minn til hamingju með afmælið 1 janúar, hún varð 3 ára stelpan :)

Við systkini :)
Skólinn búinn :D
Jæja, þá er skólinn búinn og prófin farin af stað. Er búin með eitt próf, sögu 203 og er að fara í ensku á morgun, svo íslensku á föstudaginn og þá er það komið þessa vikuna. Fer í samtals 7 lokapróf þannig ég ætla bara að taka því rólega á næstu önn :)
Jólin að fara ganga í garð, bara 20 dagar til jóla .. eða tæknilega séð 19 dagar. Er búin að þrífa herbergið mitt og skreyta það, breytti smá líka í leiðinni, alvega ótrúlega fínt og jólalegt :)
Er líka byrjuð að kaupa jólagjafir, búin að kaupa handa mömmu og Rannveigu, og er byrjuð að pæla í Baldurs :) Var að vonast til þess að komast upp með að gefa fáar gjafir í ár en það lítur ekki út fyrir að það verði.
Ég verð svo að vinna á pósthúsinu þegar ég er búin í prófunum, ég held að það sé geðveik stemmning að vera innan um alla jólapakkanna, senda þá og taka á móti fleiri hundruðum á dag :D úú, ég get ekki beðið. Þannig ég er í fríi í Hamraborg það sem eftir er af Desember, því ég fer svo heim 28 Desember til mömmu, hitta Guðrúni og svona :) get ekki beðið eftir að sjá skvísuna, er ekki búin að sjá hana síðan á BÍLADÖGUM :O shiiit .. ekki gott.
En ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinn, ætla að fara sofa svo ég verði vakandi í prófinu á morgun :)
Góða nótt :*

...
Hann Baldur minn átti afmæli seinasta fimmtudag :) Til hamingju ástin :*
Hann varð 19 ára, og ég veit ekkert hvað ég á að gefa honum ;/
En hann kemur ekki heim fyrr en á þriðjudag svo ég hef alveg 2 daga.
Vorum einnig búin að vera saman í 16 mánuði þann dag :*
Ég er búin að vera í svona förðurnaráfanga seinustu daga, mjöög gaman. Lærum að mála aðra og nota augnskyggingar og svona, og svo á miðvikurdaginn er seinasti tíminn og þá er allt dótið komið þannig við lærum kannski eitthvað meira skemmtilegt :)
Ég er líka ein heim frá næsta miðvikurdegi eða eitthvað og yfir helgina, svoo það verður bara kósýtime hjá mér og Baldri :D
En ein mynd af afmælsibarninu hérna í lokin;
Sætastur :*
Helgin.
Hann var einn heima svo við vorum bara þar, og vorum bara að hanga :)
Bökuðum pizzur, horfðum á vídjó, rúntuðum og svona. Amma hans var líka í heimsókn frá föstudegi til laugardags svo fór hún til Spánar :)
Baldur á afmæli á fimmtudaginn og verður hann 19 ára kallinn, og ég er ekki alveg viss hvað ég á að gefa honum í afmælisgjöf en ég er með svona hugmyndir og ég held að mamma ætli líka að leggja einhvern pening til svo ég get keypt eitthvað flott :)
Svo eru lokaprófin alveg að fara byrja og svona, eða styttist mjög mikið í það.
Hlutapróf 2 eru líka að fara skella á, er samt búin með eitthvað af þeim en í næstu viku eru 4 og skil á ritgerð í ísl :S kvíð ótrúlega fyrir svo ef einhver á ritgerð sem ég get stuðst við úr njálu þá væri það vel þegið :)
En ætla að segja þetta gott í bili :)
Fyrsta bloggiđ :)
Halló :)
Ákvað að próf þetta aðeins, hins síðan alveg dauð er nefnilega ekki búin að hafa tíma til þess að blogga mikið þannig ég ætla að prufa þetta. Er samt svolítið síðan ég stofnaði hana og er búin að setja inn myndir :) Endilega skoðið.
Ég eignaðist lítinn bróður þann 25.október, hann er algert krútt :D
Þannig að Stefán og Rannveig eru búin að vera hérna í viku og áttu að fara í dag en það var ekki flogið, surprise surprise :)
Fékk 130.000 útborgað fyrir þennan mánuð úr bæði skúringunum og Hamraborg, ótrúlega ánægð með það og er byrjuð að safna fyrir 20 ára afmælisgjöfinni hans Baldurs, og svo þarf ég að kaupa nýtt sæti í bílinn minn því loftpúðinn í farþegarsætinu er ónýtur :/
Ætlaði bara að hafa þetta stutt blogg í þetta sinn, ætla að setja inn eina mynd af litla bró :)
Ahh, hann er svo sætur :*
-Anna Steinunn :)

