Fyrsta bloggið :)
Halló :)
Ákvað að próf þetta aðeins, hins síðan alveg dauð er nefnilega ekki búin að hafa tíma til þess að blogga mikið þannig ég ætla að prufa þetta. Er samt svolítið síðan ég stofnaði hana og er búin að setja inn myndir :) Endilega skoðið.
Ég eignaðist lítinn bróður þann 25.október, hann er algert krútt :D
Þannig að Stefán og Rannveig eru búin að vera hérna í viku og áttu að fara í dag en það var ekki flogið, surprise surprise :)
Fékk 130.000 útborgað fyrir þennan mánuð úr bæði skúringunum og Hamraborg, ótrúlega ánægð með það og er byrjuð að safna fyrir 20 ára afmælisgjöfinni hans Baldurs, og svo þarf ég að kaupa nýtt sæti í bílinn minn því loftpúðinn í farþegarsætinu er ónýtur :/
Ætlaði bara að hafa þetta stutt blogg í þetta sinn, ætla að setja inn eina mynd af litla bró :)
Ahh, hann er svo sætur :*
-Anna Steinunn :)
vonandi gengur þér betur með þessa síðu heldur en hina :) Sé þig í fyrramálið :*
Farðu að láta heyra í þér og sjá þig hérna fyrir austan. Er farin að sakna þín rosalega mikið og fullt fullt af slúðri og svona sem að þú ert algerlega búin að missa af ;) hehe...
Innilega til hamingju með litla prinsinn, hann er alveg rosalega fallegur. Maður sér smá systkinasvip þarna .
Láttu heyra í þér, er farin að sakna þín alveg svakalega mikið :(


Flott síða, og gaman að skoða myndirnar :) Enn og aftur til hamgingju með litla bró.
Gangi þér vel með þessa síðu og allt það:D Við sjáumst hressar í skólanum;) Bæó