Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Skólinn búinn :D

05. desember 2007 klukkan 01:31

Jæja, þá er skólinn búinn og prófin farin af stað. Er búin með eitt próf, sögu 203 og er að fara í ensku á morgun, svo íslensku á föstudaginn og þá er það komið þessa vikuna. Fer í samtals 7 lokapróf þannig ég ætla bara að taka því rólega á næstu önn :)

Jólin að fara ganga í garð, bara 20 dagar til jóla .. eða tæknilega séð 19 dagar. Er búin að þrífa herbergið mitt og skreyta það, breytti smá líka í leiðinni, alvega ótrúlega fínt og jólalegt :)

Er líka byrjuð að kaupa jólagjafir, búin að kaupa handa mömmu og Rannveigu, og er byrjuð að pæla í Baldurs :) Var að vonast til þess að komast upp með að gefa fáar gjafir í ár en það lítur ekki út fyrir að það verði.

Ég verð svo að vinna á pósthúsinu þegar ég er búin í prófunum, ég held að það sé geðveik stemmning að vera innan um alla jólapakkanna, senda þá og taka á móti fleiri hundruðum á dag :D úú, ég get ekki beðið. Þannig ég er í fríi í Hamraborg það sem eftir er af Desember, því ég fer svo heim 28 Desember til mömmu, hitta Guðrúni og svona :) get ekki beðið eftir að sjá skvísuna, er ekki búin að sjá hana síðan á BÍLADÖGUM :O shiiit .. ekki gott.

En ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinn, ætla að fara sofa svo ég verði vakandi í prófinu á morgun :)

Góða nótt :*

42d663a7.gif
hæ ástin , já það er aldeilis orðið langt síðan við höfum hisst skvísa :) gott að heyra að þú sért svona dugleg með skólan :) úff ég er ekki frá því að ég sé að komast i jolastemminguna bara líka heheh :) En ég skal negla það að ég verði fyrir austan um áramótinn <3 en sakna þín svo :/
heyrumst stelpuanginn minn <3
#1
05. desember 2007 klukkan 15:10
 
Viktoria
hallo elskan.. eg er snillingur... eg helt ad u vaerir enn med hina síðuna og kommentaði þar en flott blogg og heyri í þér sæta:D
#2
05. desember 2007 klukkan 15:31
Mér hlakkar svo klikkaðslega til að koma :D
Sé þig á föstudaginn :)
#3
19. desember 2007 klukkan 17:22

Skrifa athugasemd

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Anna Steinunn Árnadóttir
  • Staður: Ísafjörður
  • Atvinna: Hamraborg
  • Hjúskaparstaða: Föstu
  • Um mig: Ég heiti Anna Steinunn Árnadóttir, er 17 ára gömul og á afmæli 3. ágúst. Fjölskyldan mín: Svana(mamma), Árni Víðir(pabbi), Anna Lára(fósturmamma) og svo eru það systkini mín sem eru Rannveig(15), Stefán(8), Júlía Ósk(2), Ónefndur Árnason(nokkra vikna) og svo eignast ég annað í mars 2008 :) Ég á líka kærasta sem heitir Baldur Kristjánsson og hann er 19 ára :* Ég á heima á Ísafirði hjá pabba mínum og 2 yngstu systkinum mínum og er á 2 ári í menntaskólanum á Ísafirði :)
  • Annað: Kommenta, takk :)

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins